
Vegghengd náttborð S.G
Af teikniborði Sveins Guðmundssonar húsgagnasmíðameistara fáum við að njóta þessara fallegu náttborða um ókomna framtíð. Sett af þessum fallegu náttborðum er nú tilbúið fyrir ný verkefni hjá nýjum eigendum. Eins og fyrri borð sem við höfum handleikið þá eru þessi búin að fá upplyftingu og eru til festingar beint á vegg í þá hæð sem passar þér. Borðin eru nánast því eins og þegar Sveinn lagði loka hönd á þau um 1970.


